Snillingur með meiru
Bloggandi þjóðbrækur
Myspaceinn minn
15.09.2008 21:02:13 / brilla

Það er komið haust og ég er hætt að snýta mér!

Sælt veri fólkið
Það er orðið frekar langt síðan ég hef skrifað hér á öldum ljósvakans og því eflaust kominn tími til að gera eitthvað í málunum.
Sumarið er liðið og til tilbreytingar fór ég í sumarfrí í fyrsta sinn á ævinni. Það hafði það í för með sér að ég mun án efa taka mér líka frí næsta sumar því að ég komst að því að það er alveg ágætt að vera í sumarfríi. Tvær vikur frísins fóru þó í það að koma sér fyrir í nýju íbúðinni sem ég og Oddur festum kaup á í sumar. Innflutningspartýið er ekki búið en samt er strax búið að kvarta undan hávaða hjá okkur, en þeir bræður voru eitthvað að brasa í mótorhjólunum í bílskúrnum fram eftir nóttu og varð nágrannanum lítið svefnsamt á meðan, þannig að partýið verður líklegast á hljóðlegum nótum.
Annars er lítið framundan núna nema að vinna og fara að skrifa meistararitgerðina í náms- og starfsráðgjöfinni.
góðar stundir


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 19:58:40 / brilla

Það er að koma sumar og ég snýti mér með augunum

Jæja það kom þá aldrei að því ég myndi ekki blogga aftur.. en undrin gerast enn..viðundrin.
Af mér er allt það sama, ég er hress að vísu með ennis og kinnholu bólgur sem hafa það í för með sér að ég þarf að taka lyf þrisvar á dag og þar með einu sinni í vinnunni. Ég hef þau því alltaf meðferðis þangað. einn stuttur var mættur snemma einn morguninn í vinnunni og var að spá í hvað lyf ég væri að taka. Ég sagði honum að ég hefði fengið mikið kvef og stíflað nef og kvefið hefði safnast fyrir neðan augun. Hann horfði þá á mig stórum augum og spurði hvort ég snýtti mér þá með augunum. Jú, lá vissulega í hlutarins eðli..

Annars er bara sumar framundan ...
bless í bili
góðar stundir

» 6 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 08:44:13 / brilla

Það er að koma páskafrí!!!

Sæl verið þið góðir hálsar;)
Það er orðið frekar langt síðan var ritað á aldir ljósvakans síðast en það verður bara að vera þannig. Maður skrifar víst ekki neitt eftir á (eða hvað)? Annars er allt gott að frétta héðan úr borg óttans eins og venju. Lífið snýst um vinnu og skóla eins og alltaf en skólinn er senn að verða búin og ég er bara fegin. Við Edda eigum eftir að gera tvö verkefni og síðan eina skýrslu í lokin sem á að skilast ekki seinna en annan 2 mai. En þá erum við líka búnar með þessa önn!!! Ég vona nú að ég nái þessu blessaða námsskeiði og eigi þá bara mastersritgerðina eftir í haust til skriftar. 
    Ég ætla að vera fyrir vestan um páskana og síðan kemur afmælið mitt senn og sumarbústaðarferð með góðum vinum...það verður nú ekki leiðinlegt. 
    Annars fékk ég góðar fréttir um daginn. Júllan er ekki að fara að flytja á þjóðtrúarstofu..mér finnst það gott hugsi ég um minn hag:haha:
    En nóg í bili
góðar stundir

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 07:48:13 / brilla

Janúar

jæja dýrið er ennþá á lífi þrátt fyrir að lítið hafi heyrst frá því á síðum ljósvakans að undanförnu, ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að ég hef bara ekki nennt því að láta ljós mitt skína.

Árið hefur farið rólega af stað og janúar er bara að verða búinn, ég verð að játa að mér finnst það nú ekki leiðinlegt, sérstaklega í morgun þar sem ég þurfti að brjótast í vinnuna til að opna leikskólann í gegnum skafla og annað á leiðinni. Opnunartími leikskólans fer ekki saman við tíma þess sem þarf að vakna til að moka göturnar en rauður komst þetta samt allt saman spurning hvort að hann hafi það heim.

Annars er bara allt gott að frétta, vinna og skóli. Í skólanum þarf ég að taka sex viðtöl vikulega og skila þannig að ég sé fyrir mér að þetta verði heljarinnar skemmtun eða þannig...

Annars er dagur ykkar herranna í dag, sjálfur bóndadagur og óska ég ykkur öllum til hamingju með það

góðar stundir


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 15:27:14 / brilla

Námið

Undur og stórmerki gerast enn innan háskóla íslands...það var fyrir rælni að vinkona mín sem er með mér í náminu nefndi við mig að ég ætti að prófa að sækja um að fá metið úr kennslufræðinni inn í masterinn í námsráðgjöfinni, ég snaraði því saman pósti í hraði og sendi inn beiðni um mat á milli þessa tveggja og þau undur og stórmerki gerðust að ég fékk metið á milli, í stað tveggja námskeiða og mastersritgerðar á ég núna bara eftir eitt námskeið og ritgerðina, fyrir mig er þetta heilmikið því að ég næ að útskrifast heilli önn fyrr en ég ráðgerði og spara um leið fullt af pening....ég er enn að melta þetta en bréfið frá hí er komið til mín þessu til staðfestingar og þetta er líka komið inn á einkunnaspjaldið mitt þannig að ég hef varla misskilið tíðindin

góðar stundir


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 17:49:32 / brilla

Jólin komin

Sælir vinir mínir nær og fjær

Núna eru jólin komin eins og Unnar Geir og Syneta hafa svo réttilega bent á í athugasemdum við síðustu bloggfærslu minni og því segi ég bara Gleðilega hátíð kæru vinir og ég vona að þið hafið það frábært um jólin....

góðar stundir


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 07:57:10 / brilla

Styttist í jólin

18 dagar til jóla en færri dagar þangað til það kemur frí:haha: Ég er búin að kaupa allar jólagjafir og ákvað að skella á jólakortin líka þannig að það er líka búið, ég er vön að  vera búin að þessu á þessum tíma því að ég hef hingað til alltaf verið í prófum um þetta leyti en ekki núna. Ég á hinsvegar eftir að sitja yfir einni ritgerð næstu daga og öll kvöld í næstu viku en ég vona að ég verði fljót að smíða hana saman þannig að ég geti farið að leika mér, fara í búðir með liðinu, kaffihús og fleira sem tíðkast hjá venjulegu óskóluðu fólki.

góðar stundir


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 08:10:43 / brilla

Þankar

Jæja, nú er orðið vel drungalegt úti og ég er ekki enn búin að láta gera við rúðupissið á drossíunni minni þannig á morgnana er ég farin að keyra í blindni á meðan hinir bílarnir frussa á mig eins og mest þeir mega. Verð að fara að drífa í þessu en nenni bara ekki að standa í þessu veseni sem að fylgir því að koma honum á verkstæði, en góðir hlutir gerast hægt var einshversstaðar sagt.

Ég fór á tónleika með kórnum hans Odds á sunnudagskvöldið, flottir tónleikar þar á ferð, annars lítið að gerast nema bodyjam, enn ein ritgerðarsmíðin, vinna og sofa. Um næstu helgi er síðan jólahlaðborð, tónleikar helgina þar á eftir og eru ekki síðan bara komin jól?

En brækur hvernig líst ykkur á eina kvöldstund í jólasmákökubakstri?

góðar stundir


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 16:23:20 / brilla

Egill og skóli

Jæja, ég ákvað að benda ykkur á eina síðu, endilega kíkjið á þetta hér http://www.fm957.is/?PageID=2290 hlustið á eitt lagið sérstaklega vel Gefðu mér gleðileg jól og greiðið því atkvæði til hliðar.....þarna er á ferð Egill samstarfsmaður minn og billjardspilari með meiru...hann á skilið að vinna:haha:

Annars allt gott nema að það er skóli á morgun og á laugardag og sömu glærur og frá því í vor eru komnar á netið..ekki hægt að segja að metnaðurinn sé að drepa kennaranna eða þannig

góðar stundir

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2007 12:39:22 / brilla

loksins föstudagur

Vitið þið að það eru að koma jól, mér finnst það frábært...ég kemst í frí...Oddurinn minn kemst í frí...ég sé systur mína meira sem án móðgunar við ykkur öll hin er jú sú besta:haha:..

Eftir vinnu ætla ég í zumba og út að borða með brókunum mínum, þær eru bestu gellurnar, frábærar í alla staði.

Til stóð að bregða mér í bíó um helgina með Tryggva en hann er bara að gubba í dag, vona að það sé nú ekki út af bíóferðinni, er það nokkuð tryggsterinn minn?

Helgin einkennist hinsvegar eingöngu af verkefnavinnu dauðans enda margt sem liggur fyrir að leysa, enn á ég eftir að klára 3 verkefni til að ljúka námskeiðinu.

Félag þjóðfræðinga stóð fyrir fyrirlestri í Háskólanum í gær en ég er þar í stjórn þannig að ég mætti. Eitt umræðuefnið voru sögur af Ólafi Ketilssyni rútubílstjóra, þær voru frábærar, hnyttinn maður þar á ferð í meira lagi!!!

góðar stundir


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 12:43:15 / brilla

Tilhlökkun

Er á fara á jólatónleika í laugardagshöllinni þann 8 desember, ég hlakka til

góðar stundir


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 08:06:24 / brilla

Edda og dans

Í gærkvöldi stálum við brækurnar henni Eddu, lugum hana fulla um að hún þyrfti að veita okkur hjálp sem hún að mikilli greiðasemi mætti til að veita. Ég náði í hana og sagði að við yrðum að koma við hjá Guðrúnu til að ná í eitthvað sem þyrfti að nota til að leysa verkefnið en þar beið hennar veisla og allar stelpurnar með hatta og flautur, kökur og kræsingar og pakka. Spurning hvort að hún þori nokkurn tímann með mér aftur í bíl, grunar mig eflaust alltaf um að ætla að gera eitthvað ljótt við hana.......

Danspartýið er fallið niður á fimmtudögum og byrjar ekki aftur fyrr en í nýju stöðinni, ég veit ekki hvað ég geri þá á fimmtudögum, málið er að ég verð bara þreytt og á erfitt með að læra ef ég fer ekki í leikfimi, sofna bara yfir bókinni, verð líklegast að fara í göngutúr þessa daga til að koma adrenalíninu af stað.

góðar stundir


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 12:46:46 / brilla

12 nóv

Jæja enn einn mánudagurinn er kominn, tíminn líður alveg ótrúlega hratt og jólin bara á næsta leyti..allavega mjög nálægu leyti. Mig langar á jólatónleika fyrir þessi jól, hef alltaf verið bara í prófum fyrir öll jól í eilífu stresskasti, núna er ég til tilbreytingar ekki í neinum prófum bara í ritgerðar- og verkefnavinnu en það er allt öðruvísi fyrirkomulag, mun betra og sé ég fram á það að geta aðeins gert eitthvað á aðventunni.

Ég fór á árshátíð hjá björgunarsveitinni fyrir austan á laugardag og þaðan beint á sveitaball með Dalton og allt var þetta mjög skemmtilegt. Í gær komst ég síðan í fjós en það er frekar langt síðan ég hef komist í alvörufjós og get ég ekki sagt annað en að það hafi verið kærkomið að komast í návígi við alvöru beljur með tilheyrandi ilmi og nýfæddum kálfi sem var afar fegin að fá putta til að stinga upp í sig.

Framundan er verkefnaskil í dag og byrjun á nýrri ritgerð á morgun....tilhlökkun:$

góðar stundir


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 20:19:09 / brilla

gleði

það er gaman að vera félagsmaður í stjórn Félags þjóðfræðinga...við Júlla sitjum hér í Odda að semja fullt af dagskrám í hvelli og erum bara að synda í djúpu lauginni og það kemur bara í ljos hvernig þetta fer allt saman....:haha: eða :^) hvort haldið þið???

Annars bara allt fínt nema Spor regnbogans er nú ekki mikið fyrir leikrit..sleppið því ef þið getið8):!:

Árshátíð fyrir austan á laugardag, spennandi.....

góðar stundir


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 15:53:05 / brilla

Stuð

Jæja kæru lesendur nær og fjær...ég var að koma úr risazumbutíma sem var haldinn niðri í Valsheimili til styrktar Unifem og verð ég að segja að það var meiriháttar gaman  :haha::haha:, nú er ég tilbúin til að setjast yfir verkefni og er mætt hérna upp á bókhlöðu til að ....rita nokkrar blaðsíður úr handbókinni fyrir verkefnið sem ég er að vinna( en samkvæmt jólalögum er víst bannað að ....rita úr þessari bók!!!) Þarf svo að skella mér með hraði heim í sturtu áður en fólk fer að leita að músinni sem dó hérna við tölvuna. Jú maður lyktar víst eftir svona tíma, það fylgir þessari íþrótt sem kallast dans.

Fór í leikhús í gær og starfsmannapartý þar á eftir, það var mjög fínt, reyndar bara afspyrnu ágætt

Rannveig og Brandur komu í bæinn í morgun og drógu mig fram úr rúminu, gott að eiga góða að sem eru tilbúnir til að vekja mann þegar maður fer seint að sofa:haha:

en nóg í bili

góðar stundir


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7